Haukur Dór er fæddur í Reykjavík 1940 og nam við Edinburgh College of Art og Konunglegu listaakademíuna í Kaupmannahöfn. Síðar stundaði hann nám við Visual Art Center í Maryland í Bandaríkjunum.
Hann hélt fyrstu einkasýningu sína á myndlist 1963 og hefur síðan haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum myndlistarmanna og leirlistamanna víða um lönd.
Haukur Dór hefur unnið að leirlist og myndlist á Íslandi, í Danmörku, Spáni og Bandaríkjunum. Í dag helgar hann sig málaralistinni alfarið.
Verk Hauks Dórs er að finna í Listasafni Íslands, Listasafni Reykjavíkur og Hönnunarsafni Íslands og að auki nokkrum öðrum listastofnunum og einkasöfnum.